Fortíð eða framtíð
12.11.2010 | 15:41
Af ýmsum ástæðum virðist umræða um þjóðkirkjuna, og tengsl hennar við ríkið, ætla að verða fyrirferðarmikil í aðdraganda stjórnlagaþings. Margir þeirra sem tala fyrir áframhaldandi sambandi halda mjög á lofti fortíð okkar, menningu og sögu.
Ég er nú á því að hlutverk stjórnlagaþingsins sé miklu frekar að horfa fram en aftur. Hvort stjórnarskráin verði vel lukkuð byggir ekki síst á því hvort þingið skipi fólk sem er ekki um of bundið við fortíðina en getur skapað nýja sýn á nýja tíma.
Nýir tímar þurfa að byggjast á einingu en ekki einsleitni. Einingu í margbreytileika - þar sem fólk gefur hvert öðru svigrúm og virðir stöðu minnihlutahópa. Í því samhengi ætti ekki að skipta öllu máli hvort trú á Guð eða trú á guðleysi væri í meiri- eða minnihluta. Virðing fyrir skoðunum annarra þarf í öllum tilvikum að vera fyrir hendi.
Mig langar auðvitað að sjá að fólk geti trúað á mannlegar framfarir. Okkur á nú að vera orðið ljóst að samfélagsumbætur felast ekki í reiknuðum hagvexti. Við þurfum að vinna með viðhorf og þroska til að efnahags- og samfélagsumbætur fari hönd í hönd. Ábyrg þátttaka trúfélaga og annarra lífsskoðunarfélaga skiptir þar máli.
Loks er rétt að hafa í huga að hefðu Íslendingar verið álíka fastheldnir á fortíðina fyrir þúsund árum og sumir þeirra sem nú tjá sig um málefni þjóðkirkjunnar, er spurning hvort eða hvenær orðið hefði af kristnitöku hér á landi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:12 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.