Vestfirðir - einn landshluti eða fleiri?

Sjávarbyggðirnar á Vestfjörðum skiptast í stórum dráttum í tvo klasa, á sunnanverðum og norðanverðum Vestfjörðum. Milli þeirra  er frumbýlislegur vegarslóði, mera en hálfrar aldar gmall, opinn á sumrin. Í raun er þarna aðeins um ferðamannaveg að ræða því engin alvöru samskipti í atvinnu eða samfélagslífi geta byggst á vegi sem, auk þess að vera hættulegur og erfiður, er aðeins opinn léttri umferð hluta ársins.

Út frá landafræðinni ættu Bílddælingar og Þingeyringar að vera nágrannar en vegna þess að heilsársvegi hefur aldrei verið komið á eru rúmir 530 kílómetrar á milli þeirra!

Vestfirðingar eru vanir slæmum samgöngum. Svo vanir að þeir næstum því líta á þær sem náttúrulögmál - kannski ekki vitandi vits en í undirmeðvitundinni. Fyrir vikið er fólki ekki tamt að horfa á þá möguleika sem gætu opnast við þá mörg hundruð km styttingu milli samfélaganna sem yrði við Dýrafjarðargöng sem hafa verið undirbúin en enn er deilt um hve lengi skuli fresta.

Í stað þess að þessar náskyldu byggðir njóti samlegðar og stuðnings af raunverulegri landfræðilegri nálægð er þeim enn stíað sundur vegna skorts á samfélagsskilningi ráðamanna. Í stað þess að vera sterk heild eru þær tvö jaðarsvæði, hvort á sínum enda vegakerfisins.

Rétt er að benda á að í þessum málum hafa Vestfirðingar ekki aðeins þurft að sætta sig við að bíða eftir bættum samgöngum, heldur hafa samgöngur beinlínis verið lagðar niður. Menn höfðu samgöngur bæði á sjó og í lofti en hvort tveggja var lagt af án þess að vegabætur kæmu í staðinn.

Það sem gerir samgönguleysið enn grátlegra er að þegar horft er á Vestfjarðakjálkann blasir Dýrafjörður við sem miðpunktur þar sem landrými og landgæði eru áberandi. Uppbygging á því kjörsvæði Vestfjarða getur ekki hafist af neinu viti fyrr en jarðgöng verða að veruleika.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband